Skemmtilegt byggingarsett frá Thames & Kosmos fyrir börn, 8 ára og eldri. Inniheldur 141 plasteiningu til að byggja úr, ásamt ljósaseríu til að lýsa upp sköpunarverkin innan frá. Plasteiningarnar eru festar saman samkvæmt forskrift úr meðfylgjandi bæklingi en með hans hjálp má búa til einhyrning, ballerínu, kanínu eða annað krúttlegt. Einnig er hægt að búa til eigin hönnun. Ljósaserían er með USB snúru.