Sniðugt og handhægt þrautaleikfang sem er tilvalið í ferðalagið. Í bæklingnum sem fylgir með eru um 200 þrautir á mismunandi erfiðleikastigum. Raðaðu plaststykkjunum í bakkann eins og þrautin sýnir og reyndu svo að fylla hann með afganginum þannig að allt passi. Einnig er hægt að byggja þrívíða píramída á lokinu á bakkanum.