Flott 30 bita Clicformers Basic sett sem inniheldur litríka smellukubba, ásamt aukahlutum á borð við hjól og öxla svo hægt er að búa til bíla og önnur farartæki. Notaðu hugmyndaflugið eða hugmyndirnar í meðfylgjandi leiðbeiningabæklingi. Þegar þú byrjar mun allt smella saman!
Clicformers Basic vörulínan frá Clics Toys inniheldur sett í ýmsum stærðum með grunnbitum og aukahlutum sem eru tilvalin fyrir hugmyndaríka og skapandi einstaklinga. Blanda má settum saman að vild og einnig nota með Magformers vörum.