Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Chem C1000

13.590 kr.

Efnafræðisett fyrir byrjendur

Skemmtilegt vísindasett frá Thames & Kosmos fyrir börn, 10 ára og eldri, til að kynna þau fyrir undrum efnafræðinnar. Með settinu er hægt að gera 125 mismunandi tilraunir, t.d. að búa til ósýnilegt blek, kanna áhrif mismunandi efna á málm, læra um rafsundrun, loftþrýsting, yfirborðsspennu, efnasamsetningu vökva, s.s. mettaðra og ómettaðra upplausna og margt margt fleira. Fyrir utan það sem settið inniheldur, þarf líka að finna til ýmsilegt sem ætti að vera til á heimilinu, s.s. sápu, sykur, matarolíu, kalk og fleira.

ATHUGIÐ að efni í settinu geta verið skaðleg fyrir augu og húð og ættu hlífðargleraugu og hanskar því alltaf að vera notuð og fullorðínn aðili ætíð viðstaddur (hlífðargleraugu fyrir fullorðna fylgja ekki).
Einnig eru efni í settinu sem geta haft áhrif á lífríki í vatni og verið ertandi fyrir öndunarfæri. 

Availability: Á lager

Deila

Aldur: 10+
Útgefandi: Thames & Kosmos
Innihald:
-Öryggisgleraugu
-3 dropateljarar
-Tengi fyrir 9 volta rafhlöðu
-Öryggistappi
-Koparvír
-2 stórmæliglös
-2 lok á mæliglös
-4 tilraunaglös
-Bursti fyrir tilraunaglös
-2 gúmmítappar (með og án gats)
-Trekt
-Þvottasódi (sodium carbonate 12 g)
-Iðnaðarsalt (Potassium hexacyanoferrate II) 4 g)
-Leskjað kalk (calcium hydroxide 8,5 g)
-Mohrssalt (ammonium iron (III) sulfate 5 g)
-Blásteinn (copper (II) sulfate 8 g)
-Sítrónusýra (citric acid 10 g)
-Lakkmúslitarduft (litmus powder 1 g)
-Flaska fyrir lakkmúslitarblöndu
-Pappírsfilter
-Mæliskeið
-Glerrör
-Statíf fyrir tilraunaglös
-Leiðbeiningar

Vörumerki

Thames & Kosmos

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.