Því fleiri því betra! Frábær viðbót við hið vinsæla verðlaunaspil Carcassonne fyrir 2-6 leikmenn, 7 ára og eldri. Nýjum leikhlutum – smiðum, svínum og vörum – fylgja nýjar reglur sem veita leikmönnum margvíslegri tækifæri til að skora stig. Ath. spilast með Carcassonne grunnspili, hægt er að fella viðbótina inn að hluta til eða að fullu.