Flott vísindasett frá Thames & Kosmos fyrir börn, 8 ára og eldri, sem kynnir þau fyrir burðarþolsfræði sem er undirgrein í verkfræði. Með því að byggja margvísleg módel hlýtur barnið grunnskilning á því hvernig brýr og skýjakljúfar standa. Í burðarþolsfræði þarf að kunna skil á eðlisfræði, byggingarefnum og rúmfræði til að byggja traust og sterk mannvirki.