Bavaría er stærsta ríki Þýskalands og er þekkt m.a. fyrir bílaframleiðslu (BMV eru t.d. upprunnir þaðan), fótbolta og fallegar byggingar, s.s. kastala eins og sjá má á myndinni eftir listamanninn Michael Ryba af hinum þekkta Neuschwanstein kastala. Flott 2000 bita púsl frá Heye. Mikið af smáatriðum fyrir metnaðarfulla og eftirtektarsama púslara. Púslið fæst í þríhyrningslaga kassa. Plakat með myndinni fylgir með.