Glæsilegt og vandað barnamótorhjól frá Jamara fyrir börn, 3 ára og eldri. Svört og rauð eftirlíking af Aprilia Dorsodoru 900. Á hjólinu eru hjálpardekk sem hægt er að taka af þegar barnið er orðið æfðara og getur notað hjólið eins og venjulegt mótorhjól. Hjólið er sett í gang með lykli. Einnig fylgir aukalykill. Öflugir mótórar knýja hjólið sem hægt er að keyra á 2 hraðastillingum. Fjaðurbúnaður fyrir höggvörn. Með ljósum og hljóðum. Port fyrir USP og MP3 snúrur. Hleðslutími er 10-15 klst og endingartími einnar hleðslu er 60-90 mín. Gripgóð dekk. Notist utandyra á jöfnu undirlagi. Hleðslurafhlöður og hleðslutæki innifalin. Stærð: 108 x 48 x 71 cm.