Lifandi og skemmtilegt kubbaleikfang. ZOOB er þekkt undir heitinu líffræðilega legoið vegna þess hversu vel það er til þess fallið að búa til líffræðileg form eins og menn og dýr. Lögun kubbanna býður upp á endalausa möguleika til samsetningar og sköpunar. Fjörið heldur svo áfram þegar hægt er að leika sér með sköpunarverkið, en kubbarnir eru hreyfanlegir eftir að búið er að setja þá saman. Spennandi leikfang sem örvar skapandi hugsun.
Þessi skemmtilegi pakki með geimþema inniheldur 49 ZOOB kubba ásamt aukahlutum og leiðbeiningar til að búa til ýmsar gerðir af tungljeppum og könnunarförum.