Skemmtilegt handavinnusett frá Goula fyrir börn. Inniheldur efni og áhöld til þess að búa til tauhundinn Milla. Fyrst þarf að sauma saman útklipptu feltbútana og sauma á þá hár, augu og munn til að mynda líkamann og setja hann í kápu. Síðan þarf að fylla hann með troði og sauma saman. Þá er hundurinn Milli tilbúinn.