Skemmtilegt föndursett sem glitrar og tindrar þér til augnayndis. Festu litríkar sindrandi pallíettur á frauðgrunninn ofan í forprentaðað mynstrið með títuprjónunum. Myndin sýnir glæsilega afmælisköku sem myndi sóma sér vel á hvaða veisluborði sem er. Frábært verkefni sem róar hugann og æfir nákvæmni og fínhreyfingar, auk þess sem til verður fallegur og eigulegur skrautmunur.
Orange vörulínan frá Sequin Art býður upp á frábær pallíettuföndurverkefni sem henta börnum, 8 ára og upp úr, sem og fullorðnum. Myndasíðurnar eru úr flauelskenndu efni.