Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Pina Pirata

2.990 kr.

Vertu svæsnasti sjóræninginn og hnepptu gyllta ananasinn!

Leiddu sjóræningjaflotann þinn í ævintýralega fjársjóðsleit að hinum eftirsótta gyllta ananas. Búið er að klippa fjársjóðskortið í sundur og dreifa hlutum þess um allt Karabíska hafið. Það er þitt hlutverk að finna þá og safna saman en hver nýr áfangastaður býður upp á nýtt ævintýri. Sigurvegarinn þarf að takast á við og buga hina sjóræningjana sem einnig eru að leita að hinum gyllta ananas.

Piña Pirata er líflegt og skemmtilegt spil frá höfundi Dominion. Leikmenn byrja með 8 spil hver og spila í umferðum. Markmiðið er að vera fyrstur til að losa sig við öll spilin á hendi. Leikmaðurinn sem vinnur umferðina fær hluta af fjársjóðskortinu og velur næsta ævintýri úr ævintýraskífunum. Eftir hverja umferð bætist því við ný ævintýraskífa sem inniheldur leikreglu sem þarf að fylgja. Spilið er því síbreytilegt og verður flóknara og skemmtilegra eftir því sem á líður. Fyrsti leikmaðurinn til að eignast fjóra hluta af fjársjóðskortinu finnur gyllta ananasinn og vinnur spilið!

 *Spilið er á ensku

Availability: Á lager

Vörunúmer 41-51144 Vöruflokkar ,

Deila

Fjöldi leikmanna: 2-6
Leiktími: 30 mín
Aldur: 8+
Hönnuður: Donald X. Vaccarino
Útgefandi: 
Innihald:
– 55 spil (tarot stærð)
– 41 ævintýraskífa
– Leikreglur
enska

Vörumerki

iello

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.