Vinsælt spil frá Schmidt í nýjum búning. Kakkalakkasúpa er fjörugt og skemmtilegt spil fyrir 2-6 leikmenn, 6 ára og eldri. Leikmenn elda súpu eins fljótt og þeir geta með því að losa sig við grænmetisspjöld til skiptis. Um leið og þeir spila út spjöldum verða þeir að lýsa viðkomandi grænmeti eins fljótt og „rétt“ og þeir geta, (chili, gulrót, púrra, sveppur) eða sötra á viðeigandi stöðum. Eitt skakkt orð, ahhh, úhhh eða hik sem varir lengur en 3 sekúndur getur orðið dýrkeypt. Sá sem er fyrstur til að losa sig við öll spjöldin á hendi vinnur.
Sameinaðu spilin kakkalakkasúpu og kakkalakkasalat í eitt stórt spil og vertu með sælkeraveislu!