Spennandi samvinnuspil frá Thames & Kosmos fyrir 1-4 leikmenn, 10 ára og eldri, í anda Escape Room leikjanna. Illgjarnir fjársjóðsþjófar hafa brotist inn í skrifstofu í fornleifafræðideild háskólans ykkar! Prófessorinn ykkar er horfinn sporlaust – og sömuleiðis bók með gömlum heimildum um falið hof. Þið verðið að hafa hraðar hendur og elta uppi glæpamennina. Leit ykkar ber ykkur djúpt í leyndardómsfullan frumskóg á lítilli eyju. Þið verðið að finna prófessorinn og bjarga helgum fjársjóði hofsins áður en það erum seinnan og hann fellur í hendur ræningjanna.