Glæsilegt 110 bita Clicformers Basic sett sem inniheldur 78 litríka smellukubba, ásamt 32 aukahlutum svo hægt er að búa til hvers kyns farartæki, fígúrur og furðuverur. Notaðu hugmyndaflugið eða hugmyndirnar í meðfylgjandi leiðbeiningabæklingi. Einnig fylgja límmiðar til að skreyta sköpunarverkin. Þegar þú byrjar mun allt smella saman!
Clicformers Basic vörulínan frá Clics Toys inniheldur sett í ýmsum stærðum með grunnbitum og aukahlutum sem eru tilvalin fyrir hugmyndaríka og skapandi einstaklinga. Blanda má settum saman að vild og einnig nota með Magformers vörum.