Sætt dýralæknasett frá Klein. Inniheldur tuskudýr í formi hunds, ásamt búri, hundamat og læknaverkfærum til að skoða hann, s.s. hlustunarpípu, sprautu, töng, hitamæli o.fl. Tilvalið í þykistuleiki fyrir unga dýravini og upprennandi dýralækna.
Klein er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu leikfanga í Evrópu, staðsett í Þýskalandi. Þeirra stefna er að framleiða leikföng sem búa til umhverfi fyrir börnin sem stuðlar að þroska þeirra, og örvar sérstaklega vitsmunaþroska, félagsfærni og hagnýtan lærdóm í gegnum þykistuleik.