- Með snúningshjóli að framan svo auðvelt er að stýra kerrunni. Framhjólinu er auðveldlega hægt að læsa fyrir hlaup eða göngu í grófara undirlagi.
- Afturdekkin eru 16″ og er kerran því afar stöðug.
- Hægt að brjóta kerruna saman með einu handtaki fyrir geymslu eða flutning.
- Handbremsa í stýrinu svo auðvelt er að stjórna hraða á mikilli ferð eða í bratta.
- Tveir skermar sem hægt er að stilla í mismunandi stöður. Sé hann alveg frammi ver hann börnin vel fyrir veðri og vindum.
- Stillanlegur halli á sæti sem legst alveg niður. ATH að hægt er að fá strappa til að halda sætinu ennþá uppréttara.
- Öflugt fjaðrakerfi gerir ferðina þægilegri fyrir alla og minnkar höggið fyrir börnin í hrjúfu undirlagi.
- Auðvelt að stilla handfang að hæð þess sem keyrir kerruna.
- Rúmgott farangurshólf undir sætum sem hægt er að loka vel með rennillás.
- Örugg og þægileg sæti með 5 punkta beltum og góðu loftflæði.
- Gluggar á hvorum skerm með segulhlíf svo hægt sé að hafa auga með börnunum án þess að trufla þau með látum.
- Aukinn sýnileiki með endurskini á hjólum og skermum.
- Hægt að nota frá fæðingu fyrir eitt barn með vagnstykki eða bílstólafestingum (selst sér).
- Hægt er að fjarlægja sæti og skerm af kerrugrindinni.
Thule Urban Glide2 Double
114.990 kr.
Létt og þægileg alhliða barnakerra sem hentar vel í mismunandi aðstæðum og undirlagi. Hentar vel sem systkinakerra eða tvíburakerra en athugið að það er aðeins hægt að setja eitt vagnstykki á kerruna.
Hentar einstaklega vel í íslenskum aðstæðum sem geta sannarlega verið fjölbreyttar.
Frábær fjöðrun, bremsa í handfangi og gott skyggni sem ver barnið fyrir veðri. Margir AUKAHLUTIR fáanlegir.
Availability: Á lager
Vörunúmer
16-10101927
Vöruflokkar Thule barnakerrur, Thule Urban Glide2
Tögg Hlaupa- og útivistarkerrur, Thule Urban Glide 2, Thule Urban glide 2 Doubble
Deila
Þyngd | 80 kg |
---|---|
Ummál | 33 × 93 × 82 cm |
Vörumerki
THULE
Thule var stofnað í Svíþjóð árið 1942. Síðan þá hefur fyrirtækið einsett sér það að hanna vörur til að einfalda virkum fjölskyldum og útivistarfólki að stunda sinn lífsstíl og áhugamál.
Thule leggur metnað sinn í að framleiða einstakar vörur sem eru gæðaprófaðar og tryggðar gegn göllum í efni og framleiðslu. Sjá nánar um ábyrgð á vörum HÉR.
Tengdar vörur
69.900 kr.
69.900 kr.