Flott ritunarsett frá Janod fyrir börn. Settið er í kassa en lokið á kassanum er einnig segulmögnuð tússtafla og á botninum er krítartafla. Ofan í kassanum eru segulstafir sem hjálpa börnum að læra tengiskrift. Einnig fylgja tússpennar, krítar og svampur. Stöfunum er raðað í orð á töfluna sem barnið getur svo hermt eftir. Inniheldur ekki séríslenska stafi.