Skemmtilegt vísindasett frá Thames & Kosmos til að búa til lýsandi saltkristalla í steini. Fyrst er búinn til ‚steinn‘ úr gifsi og síðan er hann fylltur með álún saltblöndunni og litarefninu svo kristallarnir geti vaxið. Litarefnið gerir það að verkum að kristallarnir lýsa í útfjólubláu ljósi en slíkt vasaljós fylgir settinu, ásamt öðrum áhöldum og greinargóðum leiðbeiningum (á ensku). Sett sem vekur áhuga barna á efnis-, eðlis- og jarðfræði.