Skemmtilegt föndursett sem glitrar og tindrar þér til augnayndis. Festu litríkar sindrandi pallíettur á frauðgrunninn ofan í forprentaðað mynstrið með títuprjónunum. Myndin sýnir sætan hálandsterrier hund sem eru kallaðar ‚westie‘ upp á ensku (West Highland Terrier). Frábært verkefni sem róar hugann og æfir nákvæmni og fínhreyfingar, auk þess sem til verður fallegur og eigulegur skrautmunur.
Blue vörulínan frá Sequin Art býður upp á frábær pallíettuföndurverkefni sem henta börnum, 8 ára og upp úr, sem og fullorðnum. Blue vörulínan er sú mest krefjandi af pallíettuföndrinu með þéttar pallíettur sem þarf að skipuleggja hvernig á að festa. Myndasíðurnar eru úr flauelskenndu efni.