Flottur plasmalampi frá Thames & Kosmos. Þegar lampinn er snertur með fingri fylgir rafmagnsstraumurinn hreyfingunni. Plasma, eða rafgas, er 4. efnishamurinn (til viðbótar við fast efni, vökva og gas). Lampinn virkar þannig að háspennuriðstraumur er sendur úr spennubreyti í gegnum eðalgas að innra yfirborði glerkúlunnar. Rafeindirnar lýsa upp gasið svo úr verður skemmtileg ljósasýning.
Hægt er að tengja lampann við rafmagn með meðfylgjandi USB snúru eða með 4 AAA rafhlöðum (ekki innifaldar).