Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Magic War of the Spark Planeswalker Deck

2.495 kr.

Gideon/Jace

Einn Planeswalker er eins og náttúruafl. Her af þeim býr yfir nægum krafti til að endurskapa heim – eða tortíma honum. Hér hafa Planeswalker galdramennirnir komið saman frá óteljandi heimum til að berjast í stríði sem mun ákvarða örlög alheimanna.

War of the Spark er 81. viðbótin við Magic the Gathering söguheiminn er ekki formlega hluti af viðbótarblokk, þó hún sé hluti af þriggja hluta seríu sem er óformlega kölluð Guilds of Ravnica blokkin. Á Ravnica berjast gildi um völd en vita ekki að hin skelfilegi demón Nicol Bolas er að hafa áhrif á bakvið tjöldin.

Inniheldur Planeswalker stokk sem er tilvalinn fyrir þá sem eru að byrja að spila Magic The Gathering, ásamt leiðarvísum og booster pökkum. Hægt er að velja um stokka með mismunandi persónum í forgrunni: Gideon hinn eiðsvarna sem reiðir sig á styrk í fjölda, eða Jace hinn dulda sem er herkænskusnillingur.

Í Magic The Gathering safnkortaspilinu ert þú Planeswalker; einn af kröftugustu galdramönnunum alheimsins og annara tilverustiga. Með hjálp hinna voldugu spila magnar þú seið, laðar til þín ýmsar kynjaverur og býrð þær til baráttu gegn öðrum galdramönnum með það að markmiði að ná lífsstigum andstæðingsins niður í 0 og slökkva lífsneistann.

Availability: Á lager

Vörunúmer 34-5780 Vöruflokkur Tögg , ,

Deila

Aldur: 13+

Hönnuðir: Mark Rosewater (teymisstjórn), Richard Garfield

Listamenn: Dawin Murin, Taylor Ingvarsson (teymisstjórn)

Útgefandi: Wizards of the Coast
Innihald:
60 spila stokkur

Vörumerki

Wizards of the Coast

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.