Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Ligretto Grænn

2.640 kr.

Ligretto er hraður spilaleikur og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna

Ligretto er í raun mjög einfalt spil með nokkrum einföldum reglum. Um leið og leikmenn hafa lært þær geta þeir unnið í því sem skiptir mestu máli… Að vera nógu snöggur! Markmiðið er að losna við öll spilin úr Ligretto bunkanum þínum á undan andstæðingunum, með því að vera fljótari að spila út samlitum spilum í réttri talnaröð (frá 1 upp í 10) í stafla á miðju borðinu.

Hraði er grundvallaratriði í spilinu. Þú verður að bregðast fljótt við. Allir leikmenn spila á sama tíma. Engin þarf að bíða, svo enginn verður óþolinmóður.

Ligretto kassarnir eru til í 3 mismunandi litum (rauður, blár og grænn). Allt að 8 leikmenn geta spilað saman ef notaðir eru tveir Ligretto kassar í mismunandi litum en að 12 leikmenn ef notaðir eru allir þrír litirnir.

Availability: Á lager

Vörunúmer 42-01201 Vöruflokkar , Tagg

Deila

Fjöldi leikmanna: 2-4
Leiktími: 10 mín
Aldur: 8+
Innihald:
– 4 stokkar með 40 spilum (þ.e. 160 spil). Hver stokkur er með sínu einkennismerki á framhlið spilsins, en spilin eru númeruð frá 1-10 í fjórum litum: gulum, rauðum, grænum og bláum.
– Leikreglur
islenska

Vörumerki

Schmidt

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.