Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Gamalt Íslandskort 1000 bitar

3.290 kr.

Áhugavert 1000 bita púsl með mynd af gömlu íslensku landakorti.

Landakortið Islandia kom út árið 1590 og var undirstaða íslenskrar landabréfa í hátt í aðra öld. Höfundar er hvergi getið en kortið er mikið tímamótaverk miðað við fyrri kort. Talið er víst að kortið sé gert af Íslendingi og oftast er nefndur í því samhengi Guðbrandur Þorláksson biskup á Hólum.

Kortið sýnir greinilega hvernig Íslendingar og erlendir ferðlangar skynjuðu landið fyrr á öldum. Lögun og stærð landsins er fjarri því sem nútímakort sýna en til að mynda spannar það 23 lengdargráður sem er meira en helmingsaukning frá réttu lagi og t.d. vantar Vatnajökul!

Á kortinu er einnig að finna ýmsan fróðleik. Umhverfis landið svamlar mikill fjöldi hvala og ófreskja, ásamt rekavið, hafís og ísbjörnum. Nöfnin á kortinu eru um 250 talsins auk nokkurra lesmálsgreina af vafasömum uppruna. Austan Þjórsár stendur t.d. að þar séu hestar svo fráir að þeir hlaupi 32 km í einum spretti.

Áhugavert og fræðandi púsl með íslenskum kynjaverum, landvættum, eldgosum og kennileitum mikilvæg fyrir Íslendinginn á 17 öld. Sannarlega púsl sem allir ættu að gaman af!

Availability: Á lager

Vörunúmer 47-1001 Vöruflokkar , Tagg

Deila

Aldur: 12+
Fjöldi Púslbita: 1000
Púsluð stærð: 48,5 x 68 sm

Vörumerki

Nordic Games

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.