Skemmtilegt litasett frá Crayola með Cars 3 þema. Inniheldur 18 síður með myndum ásamt 5 tússlitum. Tússlitirnir eru þeim eiginleikum búnir að aðeins er hægt að nota þá á sérstakan pappír – þann sem síðurnar eru gerðar úr. Því er ómögulegt að liturinn fari á húð eða í fatnað eða önnur efni. Hreinleg og góð skemmtun fyrir aðdáendur Pixar myndanna Cars.