Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

8-Bit Box

5.990 kr.

Frábær borðspilapakki frá Iello sem sameinar borðspil og tölvuleiki, þ.e.a.s. tölvuleikir eru settir í borðspilaform og reynt að líka eftir tölvuleikjaupplifuninni með ‚fjarstýringum‘ sem gerir leikmönnum kleift að ákvarða átt, merki og gildi sem notuð eru í leikunum. Í kassanum eru þrjú spil; Pixoid, Outspeed og Stadium.

 

Pixoid

Spennandi völundarhúsaleikur yrir 3-4 leikmenn, 6 ára og eldri. Einn leikmaðurinn leikur Pixoid sem er á flótta undan böggunum sem elta hann um leikborðið. Skiptst er á að leika Pixoid í hverri umferð og sá stigahæsti í lok leiks sigrar.

Outspeed

Kappaksursleikur fyrir 3-6 leikmenn, 8 ára og eldri. Þetta er enginn venjulegur kappakstur heldur kappakstur um geiminn á geimflaugum! Leikmenn nota fjarstýringarnar til að ákveða stefnu sína og reyna að vera fyrstir í mark. Einnig þarf að beita kænsku og leggja stein í götu andstæðinganna, sem og að gæta að eigin geimskipi.

Stadium

Íþróttaleikur fyrir 4 eða 6 leikmenn, 10 ára og eldri. Leikmenn nota fjarstýringarnar til að setja ákveðið orkumagn í hverja þraut og reyna að vinna verðlaun. Stundum þarf að vinna í liði og stundum á eigin spýtur. Sá sem hefur flest sigurstig í leikslok sigrar.

Availability: Á lager

Vörunúmer 41-51410 Vöruflokkar ,

Deila

Fjöldi leikmanna: 2+
Leiktími: 20-30 mín
Aldur: 6+
Hönnuðir: 

  • Frank Crittin
  • Grégoire Largey
Listamaður: Jean-Baptiste Reynaud
Útgefandi: iello
Innihald:
• 24 Kubbar
• 5 Teningar
• 6 ‚fjarstýringar‘
• 3 kassar með mismunandi leikjum og íhlutum:
Pixoid:
• 4 físar sem mynda leikborð
• 8 jaðarflísar sem mynda jaðar um leikborðið
• 6 persónuflísar
Outspeed:
• 3 framvinduborð
• 6 skip
• 32 bónusskífur
• 16 brautarflísar
• 7 orkumúrsskífur
Stadium:
• 16 þrautaflísar
• 2 verðlaunaspjöld
• 6 íþróttamannsspjöld
• Merki fyrsta leikmanns
• Körfuboltamerki

Vörumerki

iello

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.