Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Zombie 15

9.990 kr.

15 mínútur til að lifa af!

Verulega vandað og bráðskemmtilegt samvinnuspil sem gerist í rauntíma. Allir sem eru eldri en átján ára hafa breyst í uppvakninga og þá hungrar í ferskt hold… Leikmenn eru í litlum hópi 15 ára eftirlifenda og þurfa að vinna saman til að ná árangri. Hætturnar leynast víða en leikmenn þurfa að ferðast í gegnum bæinn til að finna vopn, húsaskjól, mat ofl. Einnig þurfa þeir að finna annað fólk sem enn er á lífi og reyna að komast að upptökum uppvakningafaraldursins.

Zombie 15 nafnið er dregið af því að spilað er í rauntíma og leikmenn hafa aðeins 15 mínútur til að sigrast á uppvakningunum og lifa af. Geisladiskur fylgir sem hjálpar til við að skapa drungalega stemningu en einnig til að passa upp á 15 mínútna regluna. Hér gildir samvinna, hugvit og hraði framar öllu. Leikmenn þurfa að taka erfiðar ákvarðanir á mettíma.

*Spilið er á ensku

Availability: Á lager

Vörunúmer 41-51115 Vöruflokkar ,

Deila

Fjöldi leikmanna: 2-4
Leiktími: 15-60 mín
Aldur: 14+

Hönnuðir: 

  • Guillaume Lemery
  • Nicolas Schlewitz
Innihald:
– Survival Guide – reglur
– Death at your Heels – herferð
– 32 svæðisskífur
– 1 geisladiskur
– 8 hetjur
– 99 uppvakningar
– 1 aðal uppvakningur
– 8 hetjuspjöld
– geymslubox
– 59 leitarspil
– 48 uppvakningaspil
– 18 sértækir munir spil
– 33 atburðarrásarspil
– 25 skotfæraskífur
– 15 lífsstigaskífur
– 40 leitarskífur
– ýmsar skífur (bíll, bensínbrúsi, þyrla ofl)
enska

Vörumerki

iello

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.