JVH 1500 bita – Hálandaleikarnir
4.395 kr. 3.736 kr.
Jan Van Haasteren Highland Games 1500 pieces
Hálandaleikarnir eru haldnir í Skotlandi og víðar um Bretland til að fagna skoskri og keltneskri menningu. Þar er keppt í íþróttum, dansi og hljóðfæraleik, einkum á sekkjapípur. Þar er ekki óalgengt að sjá menn í Skotapilsum og ýmis hefðbundin húsdýr. Sumir myndu jafnvel sverja að þeir gætu séð Loch Ness skrímslið… en górillu??
Jan Van Haasteren hefur myndskreytt ótal púsl fyrir Jumbo. Hann er þekktur fyrir skondnar og litríkar myndskreytingar, fullar af smáatriðum. Oft laumar hann sömu atriðunum inn í myndirnar, s.s. hákarlaugga, Sankti Nikulási eða sjálfsmynd. Púslarar geta skemmt sér við að leita að þessum smáatriðum.
Availability: Á lager
Vörunúmer
55-19088
Vöruflokkar Fullorðinspúsl, Púsl
Tögg JVH Jan Van Haasteren, skopmyndapúsl, Skopmyndir