Heimsmeistarakeppnin í fótbolta er stórviðburður og sumir taka hana svo alvarlega að þeir missa alveg stjórn á sér og allar reglur fjúka út í veður og vind. Kostulegt 4000 bita púsl frá Heye eftir listamanninn Guillermo Mordillo. Mikið af smáatriðum fyrir metnaðarfulla og eftirtektarsama púslara. Púslið fæst í þríhyrningslaga kassa. Plakat með myndinni fylgir með.