Flott föndur-og skartgripagerðarsett frá SES með Poopsie þema en Poopsie Slime Surprise eru vinsæl slímleikföng. Settið inniheldur efni og áhöld til að búa til þrívíddarnisti úr tvívíddarmyndum sem fest eru við teygjurnar. Nistin eru þannig gerð að myndirnar eru litaðar og farið ofan í útlínur með litum og síðan er smækkunarfilma sett yfir. Fullorðinn aðili þarf svo að hjálpa við að setja myndirnar í heitan ofn en þá minnka og þykkna myndirnar og verða að nistum.