Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Pandemic

7.800 kr.

Getið þið bjargað mannkyninu?

Pandemic er hörkuspennandi og skemmtilegt spil fyrir 2-4 leikmenn þar sem reynir á samstarfshæfni og útsjónarsemi.

Leikmannahópurinn setur sig í hlutverk sóttvarnarteymis, ferðast um heiminn og meðhöndlar og kemur í veg fyrir útbreiðslu hættulegra farsótta og faraldra. Nauðsynlegt er að vinna saman til að takast ætlunarverkið. Pandemic er samvinnuspil, leikmenn sigra eða tapa saman.

Klukkan tifar meðan þessar hættulegu plágur breiðast út sem farsóttir og faraldrar. Getið þið fundið allar fjórar lækningarnar í tíma? Örlög mannkynsins eru í ykkar höndum!

Pandemic er fyrsta spilið í Pandemic-línunni en spilin hafa m.a. hlotið verðlaun og viðurkenningar í Bandaríkjunum, Frakklandi og Ástralíu. Ekki er ofmælt að hróður þeirra hafi breiðst um heiminn eins og faraldur.

Availability: Á lager

Vörunúmer 49-6055 Vöruflokkar , Tagg

Deila

Fjöldi leikmanna: 2-4
Leiktími: 45 mín
Aldur: 8+
Hönnuður: Matt Leacock
Innihald:
– leikborð með helstu borgum heims
– 7 hlutverkaspil með samstæðum leikpeðum
– 6 rannsóknarstöðvar
– 6 skífur
– 96 pestarkubbar
– 48 smitspil
– 59 leikmannaspil
– yfirlitsspil og regluhefti
islenskaenska

Vörumerki

Z-Man Games

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.