Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

15%

Pandemic – On the Brink viðbót

4.900 kr. 4.165 kr.

Pandemic viðbót: Á ystu nöf

Viðbót við hið geysivinsæla samvinnuborðspil Pandemic fyrir 2-5 leikmenn. Er orðið of auðvelt að bjarga heiminum? Leikmenn fara sem fyrr í hlutverk sóttvarnarteymis og reyna að halda banvænum sjúkdómum í skefjum. Í viðbótinni Á ystu nöf hefur hlutverkum og viðburðum verið bætt við og leikmenn þurfa að kljást við fleiri og skæðari sjúkdóma sem geta stökkbreyst og orðið bráðsmitandi. Þeir sem vilja virkilega ögra sjálfum sér geta síðan valið viðbætta erfiðleikastigið ‚Legendary‘. Auk þess getur einn leikmaður tekið sér hlutverk illmennisins og leikið hryðjuverkamann sem beitir efnavopnum og spilar á móti hinum.

*Athugið: Þetta er ekki sjálfstætt spil, heldur viðbót sem spilast með Pandemic grunnspili.

Availability: Á lager

Vörunúmer 69-71101 Vöruflokkar , Tagg

Deila

Fjöldi leikmanna: 2-5
Leiktími: 45 mín
Aldur: 13+
Þyngd: 667 gr
Stærð pakkningar: 22,4 x 22,4 x 5,1 sm
Hönnuðir: 

  • Thomas Lehmann
  • Matt Leacock
Listamenn: 

  • Tom Thiel
  • Hans-Georg Schneider
  • Régis Moulun
  • Josh Cappel
  • Chris Quilliams
Útgefandi: Zman Games
Innihald:
– 7 ný hlutverkaspil
– 7 samsvarandi leikpeð
– 8 ný viðburðarspil
– Fjólublá sjúkdómsskífa
– Lækningarlímmiði
– Staðsetningarspjald hryðjuverkamanns
– 1 faraldsspil
– 1 yfirlitsspjald
– 5 petrískálar og merkimiðar
– 8 bráðasmitsfaraldraspil
– 2 stökkbreytingarspil
– 12 fjólubláir pestarkubbar
– 3 stökkbreytingarviðburðarspil
enska

Vörumerki

Z-Man Games

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.