Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Dauðamenn

2.250 kr.

10. apríl 1656 voru tveir feðgar brenndir á báli í Skutulsfirði. Var þeim gefið að sök að hafa ofsótt sóknarprest sinn með göldrum og valdið honum sárum þjáningum, andlegum og líkamlegum. Að dóminum og aftökunni stóðu tveir sýslumenn, Magnús Magnússon á Eyri í Seyðisfirði og Þorleifur Kortsson, sem hvað mest hefur komið við sögu íslenskra galdraofsókna.

Um þessa atburði ritaði presturinn séra Jón Magnússon píslarsögu sína þar sem hann leitaðist við að réttlæta gerðir sínar. Sú bók er varnarrit og birtir einungis sjónarmið prestsins. Í skáldsögunni Dauðamenn hefur Njörður P. Njarðvík endurskapað sögu feðganna, sem brenndir voru, í dramatískri og spennandi frásögn.

Dauðamenn kemur hér út í 2. útgáfu, en fyrri útgáfa kom út 1982. Bókin hefur verið þýdd á finnsku, sænsku, þýsku og eistnesku.

Availability: Á lager

Vörunúmer 14-002 Vöruflokkar ,

Deila

Vörumerki

NB Forlag

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.