Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Clicformers Bleikt og blómlegt 50 stk

3.480 kr.

Clicformers Blossom Set 50 pcs

Sætt 50 bita Clicformers sett frá Clics Toys úr Blossom vörulínunni sem inniheldur sett í mismunandi stærðum með fallegum smellukubbum í björtum pastellitum. Með fylgir leiðbeiningabæklingur þar sem sýnt er hvernig má búa til kanínu, skjaldböku og önnur dýr með því að smella saman kubbunum. Reyndar er hægt að byggja heilu dýragarðanna og farartæki með Clicformers. Einnig geta hugmyndaríkir krakkar hannað eigin sköpunarverk og látið ímyndunaraflið leika lausum hala.

Clicformers eru skemmtileg og litrík byggingarleikföng fyrir börn, 4 ára og upp úr, frá Belgíska framleiðandanum Clics Toys. Með þeim er hægt að smella, stafla, krækja og fella saman. Þessi frábæru smelluleikföng eru þroskandi og hafa lærdómsgildi og auðga ímyndunarafl barna. Börnin læra að fara eftir leiðbeiningum, þekkja liti og þjálfa rýmisgreind og fínhreyfingar. Clicformers eru leikföng sem vaxa með barninu því alltaf er hægt að búa til flóknari og meira krefjandi verkefni. Hægt er að nota Clicformers og Magformers sett saman.

Availability: Á lager

Vörunúmer 80-5001 Vöruflokkar , Tagg

Deila

Aldur: 4+
Innihald:
• 50 smellukubbar
• Leiðbeiningar

Vörumerki

Clicformers

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.