Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Clicformers Bestu vinirnir 74 stk

3.760 kr.

Clicformers Sweet Friends 3in1 Set 74 pcs

Sætt 74 bita sett frá Clicformers með hundaþema. Inniheldur smellukubba með ljósu litaþema, ásamt leiðbeiningum til að búa til þrjá vingjarnlega voffa: shiba, gullinsæki og velskan corgi. Auðvitað þarf ekki að fylgja leiðbeiningunum frekar en maður vill og hugmyndaríkir krakkar geta hannað eigin sköpunarverk og látið ímyndunaraflið leika lausum hala.

Clicformers eru skemmtileg og litrík byggingarleikföng fyrir börn, 4 ára og upp úr, frá Belgíska framleiðandanum Clics Toys. Með þeim er hægt að smella, stafla, krækja og fella saman. Þessi frábæru smelluleikföng eru þroskandi og hafa lærdómsgildi og auðga ímyndunarafl barna. Börnin læra að fara eftir leiðbeiningum, þekkja liti og þjálfa rýmisgreind og fínhreyfingar. Clicformers eru leikföng sem vaxa með barninu því alltaf er hægt að búa til flóknari og meira krefjandi verkefni. Hægt er að nota Clicformers og Magformers sett saman.

Availability: Á lager

Vörunúmer 80-6001 Vöruflokkar , Tagg

Deila

Aldur: 4+
Innihald:
• 74 smellukubbar
• Leiðbeiningar

Vörumerki

Clicformers

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.