Skemmtilegt sett frá Thames & Kosmos til að búa til vélmenni sem getur gengið á lóðréttum yfirborðum, s.s. gluggum, með sogskálum og pumpum. Hægt er að búa til mismunandi útgáfur af vélmenninu samkvæmt meðfylgjandi leiðbeiningum úr 25 pörtum, auk þess að kenna börnum notagildi sogkrafts og loftþrýstings. Frábært leikfang sem getur aukið áhuga barna á vísindum og raungreinum.